1. Útskýrðu eftirfarandi hugtök:
a. Sjálfsmynd
i. Allar þær hugmyndir sem þú hefur um sjálfan þig
b. Persónuleg sérkenni
i. Sérkenni sem gera okkur einstök og ólík öðrum. T.d. útlit, skapgerð, klæðaburður og fleira
c. Hópsérkenni
i. Sérkenni sem gera okkur svipuð öðrum einstaklingum. T.d. kyn, búseta, þjóðerni, aldur, áhugamál.
d. Félagsverur
i. Manneskjan er félagsvera og getur ekki lifað án samvista og samskipta við aðrar manneskjur.
e. Félagslegar þarfir
i. Ást, umhyggja og samskipti við aðrar manneskjur.
f. Viðmið
i. Allar skráðar og óskráðar reglur samfélagsins
g. Félagsmótun
i. Samskipti sem móta persónuleika og lifnaðarhætti fólks.
h. Rökhugsun
i. Fólk getur hugsað óhlutstætt og búið til kenningar um allt mögulegt. Gerist í kringum 13 ára aldurinn.
i. Tíska
i. Félagslega mótaður og breytilegur stíll, siður eða venja.
2. Hvað er átt við með að þú sért eins og aðrir en samt ekki eins og aðrir? Rökstyddu vel.
i. Ykkar eigin svör
3. Útskýrðu félagslega bakgrunn þinn og nefndu dæmi.
i. Ykkar eigin svör
4. Lýstu helstu einkennum:
a. Elsta barns
i. Vön að taka ábyrgð, ráðskast, kenna og leiðbeina.
b. Miðjubarns
i. Afbrýðisöm út í elsta systkini, berjast um athyglina og til að sanna sig, sveigjanlegra og hefur vengið meiri þjálfun í samskiptum.
c. Yngsta barns
i. Háð eldri systkinum, dekurrófan, treystir sér ekki til að taka ábyrgð og fer oft aðrar leiðir en hin systkini. Nær fram vilja sínum með því að vera skemmtilegt.
d. Segðu frá hvar þú ert í systkinaröðinni og rökstyddu með eða á móti hvort þessi skilgreining eigi við þig.
i. Ykkar eigin svör
5. Hvað er greind? Nefndu þrjár skilgreiningar á greind.
i. Greind er meðfæddu hæfileiki til að afla sér þekkingar og nýta hana til að laga sig að umhverfinu
ii. Greind er líffræðileg aðlögun sem stefnir að jafnvægi einstaklings og umhverfis
iii. Greind er hæfni einstaklingsins til að skilja og gera með sér mynd af hinum ytri veruleika innra með sér.
6. Hvort er mikilvægara að þínu mati erfðir eða umhverfi? Rökstyddu vel!
i. Ykkar eigin svör
7. Hvað er átt við með að hegðun þín er félagslega lærð?
i. Við lærum hvernig við eigum að hegða okkur með því að vera í samskiptum við annað fólk sem sýnir okkur rétta hegðun og kennir okkur rétta hegðun. Eru það samskipti alla sem í kringum okkur eru, hvort sem það eru fjölskyldan, vinir, skólaumhverfið eða aðrir.
No comments:
Post a Comment