Monday, May 16, 2011

10. bekkur - verkefni 10

10. bekkur – Þjóðfélagsfræði

Verkefni 10. (er í rauninni nr. 9)      

                                                    

  1. Útskýrðu eftirfarandi hugtök og orð og nefndu dæmi ef þarf:
a)    Vesturheimur
§  Norður-Ameríka, Bandaríkin og Kanada. Íslendingar fluttust  þangað í leit að betra lífi og meiri tækifærum.
b)    EES
§  Evrópusambandið
c)    Flóttamaður
§  Einstaklingur sem hefur yfirgefið land sitt og á ekki afturkvæmt af ótta við ofsóknir vegan kynþáttar, trúarbragða þjóðernis, stjórnmálaskoðana eða annars.
d)    Dylfinarreglugerðin
§  Var sett árið 2003 og á að koma í veg fyrir að flóttafólk sæki um hæli í mörgum löndum.
o   Evrópusambandið
§  Samvinnustofnun Evrópuþjóða, stofnað 1957 með það að  markmiði að bæta lífskjör og skapa náin tengsl milli Evrópuríkja.
e)    Verðbólga
§  Síhækkandi verð á vörum og þjónustu sem hefur áhrif á allt verðlag í þjóðfélaginu
f)     Útrásarvíkingur
§  Hvað finnst ykkur vera útrásarvíkingur?
g)    Gjaldþrot
§  Geta ekki lengur staðið undir afborgunum skuldbindinga og verða því að lýsa sig gjaldþrota sem þýðir að allar eignir eru teknar upp í kröfur lánadrottna
h)   Indefence
§  Samtök sem stofnuð voru til þess að mótmæla beitingu hryðjuverkalaga Breta á Ísland í kjölfar bankahrunsins 2008.
i)     Skuldabréf
§  Bankar veita einstaklingum lán gegn veði í eignum, yfirleitt verðtryggð og með ákveðinni prósentuvöxtum. Einstaklingar borga síðan lánið til baka með reglulegum afborgunum sem eru afborgun af nafnverði plús vextir og verðtrygging.
j)      Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
§  Kemur ríkjum í miklum efnahagserfiðleikum til hjálpar, veita lán til ríkjanna eftir að gerð hefur verið aðgerðaráætlun til þess að bæta stöðu landsins.

  1. Fólki með annan ríkisborgararétt en íslenskan hefur fjölgað hér á landi á síðustu arum. Af hverju heldurðu að það sé?
    • Þetta á að vera ykkar skoðun en gott er áður en þið myndið ykkur skoðun að lesa bls. 145-150, þar sem fjallað er um leit Íslendinga hér áður fyrr að betri lífsgæðum í öðrum löndum, flóttafólk og hælisleitendur og aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og hvað það þýðir.
  2. Af hverju eigum við að forðast að nota staðalmyndir?
    • Ykkar eigin skoðun. Athugið að skilgreining á staðalmynd er eftirfarandi: einfaldar, yfirdrifnar og fordómafullar lýsingar á öllum einstaklingum innan sérstaks hóps.
  3. Hvað er alþjóðavæðing og hverjir eru kostir hennar og gallar?
    • Alþjóðavæðing þýðir að heimurinn fer minnkandi með betri samgöngum og meiri samskiptum á netinu. Kostir og gallar – ykkar skoðun
  4. Hvað þýðir hugtakið kreppa? Er kreppa á Íslandi? Rökstyddu svarið.
    • Lönd eiga í miklum efnahagslegum erfiðleikum, miklar skuldir og geta ekki staðið við eða eiga erfitt með að standa við skuldbindingar sínar, mikill skortur er á erlendum gjaldeyri, gjaldmiðillinn er lítils virði í alþjóðaviðskiptum, mikil verðbólga og mikið atvinnuleysi. Ykkar skoðun.
  5. Hvers vegna bitnar heimskreppan harðar á fátækari löndum en ríkum?
    • Vegna þess að fátækari ríki er ekki jafnvel í stakk búin að takast á við kreppu eins og þau ríku. Allir innviðir þróunarríkja eru miklu veikari fyrir eða jafnvel ekki til svo sem heilbrigðis- eða menntakerfi. Minna er verslað við þróunarríkin þar sem ríkari ríkin draga saman og þar með verður atvinnuleysi mikið og það er ekkert kerfi sem tekur við og aðstoðar fólk í erfiðleikum í þróunarríkjum.
  6. Af því þau ríki skulda meira, mennta- og heilbrigðiskerfið er veikt og atvinnuleysi mikið, því eru þau viðkvæmari fyrir áföllum en ríku ríkin.
  7. Hvert er hlutverk Seðlabanka Íslands?
    • Sjálfstæð stofnun innan íslenska ríkisins sem fer þó með eigin stjórn. Sér um stjórn peningamála á Íslandi og á að sjá til þess að stöðugleiki haldist í verðlagsmálum.
  8. Það er talað um efnahagskreppu, heimskreppu og einfaldlega kreppu. Hvaða munur er á þessum orðum?

No comments:

Post a Comment