10. bekkur – þjóðfélagsfræði
Verkefni 5
1. Útskýrðu eftirfarandi orð og hugtök og nefndu dæmi ef hægt er:
a. Brottfall
i. Nemendur sem hætta námi án þess að ljúka lokaprófi
b. OECD
i. Efnahags- og framfarastofnun Evrópu
c. Lögverndað starfsheiti
i. Starf sem enginn má vinna nema að hafa lokið viðurkenndu námi í þeirri grein
d. Jafnrétti til náms
i. Skólinn á að gæta jafnréttis til náms og bjóða öllum nám og kennslu við hæfi. Þættir sem hafa áhrif á jafnrétti til náms eru: kyn, efnahagur, búseta og bakgrunnur fjölskyldunnar
e. Iðnbylting
i. Hófst í Bretlandi 1750, barst til Íslands í byrjun 20. aldar. Farið var að fjöldaframleiða vörur í verksmiðjum sem varð til þess að fólk fluttist í borgir nálægt verksmiðjunum til þess að fá vinnu, þannig jók iðnbyltingin á þéttbýlismyndun og samfélagið breyttist út sjálfsþurftarbúskapi í neyslusamfélag.
f. Upplýsingabylting
i. Vinnuumhverfi og störf hafa breyst gífurlega og hratt með upplýsingabyltingunni. Störf breytast í sífellu og fólk þarf stöðugt að læra nýjar vinnuaðferðir til þess að halda í við starfið og verða ekki úrelt.
g. Skólar
i. Hlutverk skóla:
1. Veita nemendum formlega menntun og útskrifa með lokaprófi
2. Veita félagsmótun: kenna nemendum samskipti við ólíka einstaklinga og hópa
3. Veita nemendum þá tilfinningu að þeir tilheyri einhverjum hópi, ýtir undir öryggistilfinningu að vera hluti af hóp
4. Geymslustaður
h. Formleg menntun
i. Fer fram í skóla og lýkur með formlegu lokaprófi
i. Óformleg menntun
i. Allt sem þú lærir í samskiptum við aðra sem ekki er kennt á bók, fer fram í og utan skóla
j. Dulin námsskrá
i. Allt það sem þú lærir í skólanum sem ekki er skráð í námskrá
2. Hvaða spurninga þarft þú að spyrja þig áður en þú ákveður að halda áfram í námi eða hvers konar nám hentar þér best?
a. Finnst þér gaman að læra?
b. Á hverju hefurðu áhuga?
c. Hvaða skóli uppfyllir þín skilyrði?
3. Hvaða skilyrði þarftu að uppfylla til þess að eiga rétt á að hefja nám í framhaldsskóla?
i. Ljúka grunnskóla
4. Hvað hlunnindi og gæði fylgja því að hafa fasta vinnu?
i. Tekjur, rétt á orlofi (sumarfrí og önnur frí) og orlofspeningum, lífeyrisréttindi, þátttökurétt í stéttarfélagi og þar með stjórnmálaleg áhrif.
5. Hvernig hefur tækniþróun breytt vinnumarkaðnum?
6. Af hverju er nauðsynlegt að halda við þeirri þekkingu og færni sem maður hefur þegar öðlast?
i. Af því störf og tækni breytast svo hratt nú á tímum að nauðsynlegt er að læra nýja hluti svo maður verði ekki úreltur í starfi
7. Hvað finnst þér um skólaskyldu? Rökstyddu svarið.
i. Ykkar svör
8. Hvaða nám hefur þú hugsað þér að sækja um? Hvers vegna? Finndu nokkrar ástæður fyrir vali þínu á námi og hvað það á að leiða til í framtíðinni.
i. Ykkar svör
No comments:
Post a Comment